Kæru félagsmenn og vinir.
Árið 2026 hefur verið viðburðaríkt í starfi Golfklúbbs Þorlákshafnar. Starfið hefur einkennst af áframhaldandi uppbyggingu á Þorláksvelli, eflingu þjónustu við félagsmenn, aukinni áherslu á barna- og unglingastarf og mótun metnaðarfullrar framtíðarsýnar.
Á árinu voru stigin markviss skref til að gera starfsemi klúbbsins ...
Rekstrartekjur GÞ námu 154.588.321 kr. frá janúar til október 2026. Það er um 50 milljónum meira en á öllu árinu 2025, þegar tekjurnar námu 104,7 milljónum. Vallargjöld, golfbílaleiga og æfingasvæði skiluðu saman stærsta tekjuliðnum, en félagsgjöld komu þar á eftir.
Frá janúar til október 2026 voru skráðar 21.719 heimsóknir á Þorláksvöll. Það eru 3.796 fleiri heimsóknir en á öllu árinu 2025, þegar þær voru 17.923.
Af þeim 159 sem svöruðu spurningunni um klúbbinn í heild voru 61% mjög ánægð og 35,8% frekar ánægð. Viðmót starfsfólks fékk oftast hæstu einkunn af þeim fimm þáttum sem spurt var um.
Sögulegt skref var stigið á fundi stjórnar í október 2026 er ákvörðun var tekin um að hefja nýtt og metnaðarfullt heilsárs afreks- og æskulýðsstarf, með ráðningu fjögurra þjálfara og samstarfi við Teiginn golfstofu.
Ernir Ingi Eiríksson, bikarmeistari GÞ, og Haraldur Guðmundsson, sigurvegari á innanfélagsmótaröð GÞ 2026.
Aldrei hafa fleiri konur tekið reglulega þátt í kvennagolfinu á miðvikudögum. Um þrjátíu konur voru virkar, en leikið er í þriggja til fjögurra kvenna ráshópum, sem fara af stað milli kl. 18 og 19, vanar og nýjar saman.
Efnt var til tveggja hópferða innanlands auk þess sem kvennanefndin stóð fyrir utanlandsferð GÞ-félaga í haust, til Barcelona. Í henni voru 26 kylfingar, flestir úr GÞ.
Mynd: Ágústa Ósk Ásgeirsdóttir og amma hennar, Ásta Júlía Jónsdóttir, sem kom m.a. fram í skemmtilegu viðtali um kvennastarfið á vefmiðlinum Hamingjuhöfn á árinu.
Gæði flata voru í forgangi á árinu, en flatir á holum 2, 7, 10 og 12 tóku miklum framförum. Á brautum vék kornaáburður fyrir fljótandi næringargjöf, sem lofaði góðu seinni hluta vertíðar eftir að nokkurn tíma hafði tekið að ná á henni góðum tökum. Mikil vinna fór í að halda teigum góðum samhliða stóraukinni notkun, en nokkrir þeirra munu þurfa meiri vinnu, eins og bláu teigarnir á holum 3 og 4 og gulur teigur á holu 6. Efri teigarnir á holu 2 voru teknir aftur í notkun en verða vart langlífir með sama áframhaldi vegna smæðar sinnar. Byrjað var á tyrfingu á brotholum á athafnasvæðum við teiga og grasi vöxnum göngusvæðum og þarf sú vinna að halda áfram af krafti. Hugað verður að tröppum eða álíka lausnum við teiga á holum 7, 9 og 14.
Endurbætur á golfskálanum áttu upphaflega að bíða, en klúbburinn flýtti þeim að kröfu Heilbrigðiseftirlits Suðurlands. Aðskilja þurfti snyrtingar gesta og starfsfólks og afmarka aðstöðu fyrir skolvask og ræstingar.
Með því að færa létta milliveggi tókst að koma þessari aðstöðu fyrir. Vinnurýmið innan við afgreiðsluborðið var endurskipulagt að hluta og veitingasalurinn fékk nýja liti og lýsingu.
Rætt hefur verið um frekari breytingar á skálanum og möguleika á að stækka hann. Víkjandi staða þessa hluta vallarins í skipulagi svæðisins skapar þó óvissu um framtíð skálans á þessum stað. Klúbburinn vinnur því í samráði við Sveitarfélagið Ölfus að tillögu að uppbyggingaráætlun sem rúmar fleiri en eina útfærslu.
Yfir sumarið var skálinn almennt opinn frá kl. 8 til 21, en oft lengur þar sem kvöldgolf jókst umtalsvert samanborið við árið á undan.
Gerðar voru tilraunir með vaktakerfi á vellinum, svo kylfingar gætu leitað til starfsfólks meðan á leik stóð. Blessunarlega gátum við komið fólki til aðstoðar í þau tvö slys sem vitað er til að slys hafi orðið á fólki.
Í öðru tilvikinu varð kylfingur fyrir bolta sem annar í sama ráshópi sló. Í hinu missti kylfingur stjórn á golfbretti á leið niður brekku. Starfsfólk fékk upprifjun í neyðaraðstoð og til stendur að koma upp betri búnaði, eins og hjartastuðtækjum.
Eitt af stóru verkefnunum fram undan er að bæta leikflæði á Þorláksvelli og ná betri tökum á aðstoð við eða aðhald gagnvart kylfingum þegar leikur tefst.
Golfklúbbur Þorlákshafnar nýtur fulltingis margra aðila og er þar stuðningur Sveitarfélagsins Ölfuss í algerum sérflokki. Framlög þess gegna lykilhlutverki í áframhaldandi uppbyggingu golfíþróttarinnar á svæðinu, vallarins og klúbbsins.
Unnið var formlega með nokkrum fyrirtækjum á árinu, en þar ber hæst vel heppnað samstarf við 66 Norður, en félagar í GÞ fá 20% afslátt af vörum í verslun fyrirtækisins í Miðhrauni í Garðabæ.
Mynd: Hallgrímur Þór Axelsson var útnefndur sjálfboðaliði ársins á aðalfundi 27. janúar 2026, vegna starfsársins 2025, en Grímsi, eins og hann er kallaður, hefur unnið óteljandi stundir í sjálfboðavinnu, sérstaklega á vettvangi mótanefndar. Hann er vel að nafnbótinni kominn.
Tugir einstaklinga koma að starfi klúbbsins, sem sjálfboðaliðar eða starfsmenn.
Þessi sátu í stjórn 2026. Stjörnumerkt eru til endurkjörs 24. nóvember 2026:
Árni Hrannar Arngrímsson formaður*
Gyða Steina Þorsteinsdóttir varaformaður
Sigríður Lára Ásbergsdóttir gjaldkeri*
Ingvar Jónsson ritari*
Óskar Gíslason meðstjórnandi
Varastjórn:
Snorri Jökull Egilsson*
Haraldur Guðmundsson*
Framkvæmdastjóri er Vigdís Gunnarsdóttir.
Tillagan gerir ráð fyrir 2,5% hækkun almennra árgjalda. Fjárhæðir eru námundaðar að næsta hundraði. Lagt er til að fjaraðild hækki úr 9.900 kr. í 10.900 kr. vegna verðlagsbreytinga og hækkunar á félagagjaldi GSÍ.