Yfir sumarið tók starfsfólk á móti kylfingum í golfskálanum frá morgni til kvölds. Klúbburinn prófaði einnig vaktakerfi úti á vellinum svo kylfingar gætu leitað til starfsfólks meðan á leik stóð.
Eitt af stóru verkefnunum fram undan er að bæta leikflæði á Þorláksvelli. Starfsfólk á vakt getur bæði aðstoðað kylfinga og veitt ráshópum aðhald þegar leikur tefst.
Klúbbnum er kunnugt um tvö slys á kylfingum á árinu. Í öðru tilvikinu varð kylfingur fyrir bolta sem annar í sama ráshópi sló. Í hinu missti kylfingur stjórn á golfbretti á leið niður brekku. Í bæði skiptin var starfsfólk á vellinum og gat komið kylfingunum til aðstoðar.
Starfsfólkið rifjaði upp skyndihjálp á námskeiði í golfskálanum. Þar æfðu þátttakendur meðal annars hjartahnoð á æfingabrúðu. Klúbburinn áformar að koma fyrir einu eða fleiri hjartastuðtækjum á svæðinu.