Áður en farið var í hefðbundin aðalfundarstörf skv. auglýstri dagskrá var Sigurður Steinar Ásgeirsson, skipulagsfulltrúi Sveitarfélagsins Ölfuss, fenginn til að kynna framtíðarskipulag á svæðinu í kringum golfvöllinn. Fram kom að frá upphafi hafi legið fyrir að völlurinn væri á hugsanlegu framtíðarhafnarsvæði. Fyrirhuguð hafnarstækkun næstu 5–7 ára mun ekki hafa áhrif á völlinn, en í aðalskipulagi er gert ráð fyrir frekari stækkun til lengri tíma. Því er mikilvægt að huga að framtíðarskipulagi og stækkun golfvallarins í samræmi við vöxt sveitarfélagsins.
Í lok erindisins svaraði Sigurður spurningum frá fundargestum.
Kosning fundarstjóra og fundarritara
Árni Hrannar Arngrímsson, formaður klúbbsins, lagði fram tillögu um að Sigurður Steinar Ásgeirsson yrði fundarstjóri og Valur Rafn Halldórsson fundarritari. Samþykkt samhljóða.
Skýrsla stjórnar um störf og framkvæmdir á vegum félagsins
Formaður gerði grein fyrir störfum stjórnar og vísaði til ársskýrslu sem send hafði verið félagsmönnum með tölvupósti og er aðgengileg á heimasíðu félagsins: https://www.golfthor.is/um/efni/arsskyrsla-2025
Hann þakkaði stjórnarfólki, nefndum, starfsfólki og félagsmönnum fyrir gott samstarf og skilning á krefjandi tímabili. Sérstakar þakkir voru færðar Edwin og Vigdísi.
Greint var frá því að tekjur hefðu aukist um 22% á síðasta ári. Fyrsta kvennalið klúbbsins tók þátt í keppni og ungmennastarf hefur eflst, með rúmlega fjörutíu ungmenni við æfingar. Í máli formanns kom jafnframt fram að unnin hefði verið greining á næringarþörf golfvallarins, sláttur rafvæddur með innleiðingu slátturróbota og ákveðið að setja upp sólarsellur.
Kynning á ársreikningi félagsins
Óttar Ingólfsson gjaldkeri vísaði í ársreikning í fyrrnefndri ársskýrslu. Þar kom fram að alls var um 3,5 milljóna króna afgangur af rekstri golfklúbbsins 2025, að teknu tilliti til afskrifta og fjármagnsliða. Án þeirra var rekstrarafkoman jákvæð sem nemur um 8 milljónum króna. Heildartekjur voru 104,7 milljónir króna og jukust þær um tæp 22% milli ára.
Umræður um skýrslu formanns og ársreikning sem síðan skal borinn upp til samþykktar
Að lokinni umræðu um skýrslu formanns og ársreikning var gengið til kosninga um ársreikning í opinni kosningu.
Ársreikningur samþykktur með yfirgnæfandi meirihluta. Einn var á móti.
Lagabreytingar
Engar tillögur að lagabreytingum höfðu verið lagðar fram fyrir tilsettan dag skv. lögum félagsins.
Kosning stjórnar og skoðunarmanna
Fundarstjóri gerði grein fyrir því að Óttar Ingólfsson gjaldkeri gæfi ekki kost á sér til endurkjörs. Jafnframt kom fram að eftirfarandi stjórnarmenn sitja áfram í aðalstjórn (kjörnir til tveggja ára á síðasta fundi): Ingvar Jónsson og Sigríður Lára Ásbergsdóttir.
Eftirfarandi lýstu yfir framboði til setu í aðalstjórn:
Árni Hrannar Arngrímsson (til endurkjörs sem formaður)
Brynjar Harðarson
Dagur Skúlason
Gyða Steina Þorsteinsdóttir (til endurkjörs)
Óskar Gíslason
Kosning formanns:
Árni Hrannar Arngrímsson var endurkjörinn formaður með lófaklappi.
Kosning aðalfulltrúa í stjórn:
Áður en gengið var til atkvæða kynntu frambjóðendurnir Dagur Skúlason, Gyða Steina Þorsteinsdóttir og Óskar Gíslason sig. Brynjar Harðarson var ekki mættur og náði því ekki að kynna sig fyrir fundargestum.
Atkvæði í leynilegri kosningu um tvö sæti í stjórn skiptust þannig:
Brynjar Harðarson – 2
Dagur Skúlason – 13
Gyða Steina Þorsteinsdóttir – 37
Óskar Gíslason – 38
Auðir seðlar – 1
Ógildir seðlar – 1
Gyða Steina Þorsteinsdóttir og Óskar Gíslason voru því réttkjörin í stjórn til tveggja ára.
Kosning í varastjórn:
Fyrir fundinn höfðu Haraldur Guðmundsson og Snorri Jökull Egilsson boðið sig fram í varastjórn klúbbins.
Á fundinum bauð Dagur Skúlason sig jafnframt fram í varastjórn.
Atkvæði í leynilegri kosningu um tvö sæti í varastjórn skiptust þannig:
Dagur Skúlason – 19
Haraldur Guðmundsson – 29
Snorri Jökull Egilsson – 41
Haraldur Guðmundsson og Snorri Jökull Egilsson voru því réttkjörnir í varastjórn klúbbsins.
Kosning skoðunarmanna:
Ásta Margrét Grétarsdóttir og Óttar Ingólfsson voru sjálfkjörin sem skoðunarmenn.
Skipan stjórnar Golfklúbbs Þorlákshafnar er þá þessi:
Aðalstjórn:
Árni Hrannar Arngrímsson formaður
Sigríður Lára Ásbergsdóttir
Ingvar Jónsson
Gyða Steina Þorsteinsdóttir
Óskar Gíslason
Varastjórn:
Haraldur Guðmundsson og Snorri Jökull Egilsson.
Félagskjörnir skoðunarmenn reikninga:
Ásta Margrét Grétarsdóttir og Óttar Ingólfsson.
Tilnefning og kosning nefndarformanna
Eftirfarandi tillaga að nefndarformönnum voruar samþykkt með lófataki:
Mótanefnd: Ingvar Jónsson
Vallar- og mannvirkjanefnd: Óskar Gíslason
Forgjafarnefnd: Ingvar Jónsson
Aganefnd: Sigurður Steinar Ásgeirsson
Kvennanefnd: Elín Ósk Jónsdóttir
Barna-, unglinganefnd: Jón Hafsteinn Sigurmundsson
Ákveðið árgjald og önnur gjöld fyrir næsta starfsár
Stjórn lagði fram eftirfarandi gjaldskrá fyrir árið 2026:
Félagsgjald:
27-66 ára: 77.900 kr.
67 ára og eldri: 57.900 kr.
19-26 ára: 29.900 kr.
16-18 ára: 14.900 kr.
15 ára og yngri: 9.900 kr.
Maki félaga: 57.900 kr.
Nýliðagjald: 47.900 kr.
Annað:
Aukaaðild: 57.900 kr.
Tillaga stjórnar að gjaldskrá var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.
Önnur mál
Ásta Júlía Jónsdóttir og Ásgeir Sigurbjörnsson kynntu golfferð GÞ félaga til Spánar 2.-9. október 2026 til Barcelona.
Að því loknu þá fékk formaður orðið og kynnti útnefningu á sjálfboðaliða ársins sem var að þessu sinni Hallgrímur Þór Axelsson. Formaður óskaði honum innilega til hamingju með nafnbótina. Jafnframt óskaði hann nýkjörnu stjórnarfólki til hamingju með kjörið.
Að því loknu sleit hann fundi.
Fundi slitið kl. 21:50.