Endurbætur á golfskálanum áttu upphaflega að bíða, en klúbburinn flýtti þeim að kröfu Heilbrigðiseftirlits Suðurlands. Aðskilja þurfti snyrtingar gesta og starfsfólks og afmarka aðstöðu fyrir skolvask og ræstingar.
Með því að færa létta milliveggi tókst að koma þessari aðstöðu fyrir. Vinnurýmið innan við afgreiðsluborðið var endurskipulagt að hluta og veitingasalurinn fékk nýja liti og lýsingu.
Rætt hefur verið um frekari breytingar á skálanum og möguleika á að stækka hann. Víkjandi staða þessa hluta vallarins í skipulagi svæðisins skapar þó óvissu um framtíð skálans á þessum stað. Klúbburinn vinnur því í samráði við Sveitarfélagið Ölfus að tillögu að uppbyggingaráætlun sem rúmar fleiri en eina útfærslu.
Gluggakarmur slípaður áður en málað var.
Horft yfir salinn að afgreiðslunni eftir breytingar.