Rauða liðið, undir forystu klúbbmeistarans Brynjars Loga Bjarnþórssonar, fagnaði sigri í Bændaglímunni í dag laugardaginn 12. september, en liðið fékk 22 stig gegn 14 stigum bláa liðsins, sem hinn klúbbmeistarinn, Berglind Ósk Geirsdóttir, fór fyrir.
Í rauða liðinu voru, frá vinstri á mynd: Pétur Sævald Hilmarsson, Guðmundur Kristján Haraldsson, Alex Þór Geirsson, Brynjar, Gunnar Freyr Þorsteinsson, Gunnar Þorsteinsson, Heiðrún Hreiðarsdóttir, Sigríður Karlsdóttir, Eva Hildur Kristjánsdóttir og Ásta Kristjana Jensdóttir.
Aðrir í rauða liðinu voru Uthman Jordan Adeyemo, Erla Adolfsdóttir, Húnbogi Jóhannsson, Jóhann Peter Andersen, Guðmundur Orri Arnarson, Hákon Davíð Nielsen, Gísli Borgþór Bogason, Guðjón Ingi Daðason, Adam Freyr Gunnarsson, Júlíus Steinn Kristjánsson og Gústaf Ingvi Tryggvason.
Í liði blárra og marðra, sem var synjað um nafnleynd, voru, auk Berglindar: Árni Hrannar Arngrímsson, Ívar Örn Baldursson, Baptiste Gateau, Andrés Ævar Grétarsson, Haraldur Guðmundsson, Hólmar Víðir Gunnarsson, Helgi Jökull Hilmarsson, Þórunn Jónsdóttir, Kristófer Júlíusson, Jóna Svava Karlsdóttir, Almar Kárason, Tómas Þór Kárason, Viktor Freyr Ómarsson, Heimir Óskarsson, Eyþór Almar Sigurðsson, Hörður Skúlason, Guðlaugur Þ. Sveinsson, Ásgeir Þorláksson og Þröstur Ægir Þorsteinsson.
Metfjöldi keppenda tók þátt, en 41 kylfingur skráði sig til leiks. Metþátttaka var einnig í fyrra, þegar 37 kylfingar glímdu. Bændaglíman er jafnan síðasta innanfélagsmót hverrar vertíðar, en í suðlægum strandbæ eins og Þorlákshöfn er sumar í september og enginn haustbragur á starfsemi GÞ.
Meðal næstu viðburða eru óopinbert Landsmót vinnustaða fimmtudaginn 24. september, þar sem sigurliðið fer á HM í Peking, og Þorláksmessumótið, sem haldið var í fyrsta sinn í fyrra og sló rækilega í gegn.