Kæru félagsmenn og vinir.
Árið 2026 hefur verið viðburðaríkt í starfi Golfklúbbs Þorlákshafnar. Starfið hefur einkennst af áframhaldandi uppbyggingu á Þorláksvelli, eflingu þjónustu við félagsmenn, aukinni áherslu á barna- og unglingastarf og mótun metnaðarfullrar framtíðarsýnar.
Á árinu voru stigin markviss skref til að gera starfsemi klúbbsins fjölbreyttari og aðgengilegri. Ýmis verkefni voru sett af stað sem miða að betri sjálfbærni á rekstri vallarins. Gott dæmi er fjárfesting í áburðar dróna sem getur með mikilli námvæmni dreift næringu þar sem þörfin er hverju sinni og farið þar sem almenn tæki ná ekki til. Er þetta góð viðbót við sláttur róbóta sem fjárfest var í 2025.
Stærsta einstaka ákvörðunin varðandi íþróttastarfið var að koma á heilsársstarfi fyrir börn og unglinga. Jafnframt hefur verið unnið við endurbætur á húsakosti á vellinum, nýjum púttvelli fyrir eldriborgara og nær samfélagið ásamt framtíðarsýn sem getur, ef forsendur skapast, gert svæðið að enn öflugri miðstöð golfíþróttar og útivistar.
Mótaskrá ársins var fjölbreytt og náði yfir innanfélagsmót, opin mót og mót á vegum Golfsambands Íslands og Landssambands eldri kylfinga. Á dagskrá voru meðal annars Black Sand Open, Powerade-mót GSÍ, átta mót í innanfélagsmótaröð, Jónsmessumót, meistaramót GÞ, Hamingjumót, Íslandsmót kylfinga 14 ára og yngri ásamt okkar árlegu Bændaglímu. Einnig hefur GÞ tryggt sér réttinn að fyrirtækjamóti WCGC sem á eftir að vera skemmtileg viðbót inn í flóru golfmóta á Íslandi.
Rekstur félagsins gengur vel og hafa tekjur verið að aukist umtalsvert á milli ára eða úr 104 milljónum árið 2025 í 154 milljónir fyrstu 10 mánuði ársins 2026. Síðustu þrjú ár hafa tekjur aukist jafnt og þétt sem gerir okkur kleift að fjárfesta í nýjum tækjum og ráðast í fjárfrekari verkefni sem stuðla að bættri þjónustu og gæðum vallar.
Lykillinn að góðu gengi og bjartri framtíð GÞ er að finna í þeim metnaði sem starfsmenn, sjálfboðaliðar og velunnarar hafa sýnt í verki. Stjórn þakkar félagsmönnum, starfsfólki, sjálfboðaliðum, styrktaraðilum, samstarfsaðilum og Sveitarfélaginu Ölfusi fyrir framlag þeirra á árinu.
Árni Hrannar Arngrímsson
Formaður Golfklúbbs Þorlákshafnar