Æfingar hjá Golfklúbbi Þorlákshafnar hófust um miðjan nóvember tveimur golfhermum hjá Teignum golfstofu. Alls eru æfingahóparnir níu og spannar aldurinn allt frá sjö ára iðkendum upp í 46 ára kylfing í meistaraflokki.
Æfingatíðnin er mismunandi eftir aldri og hópum. Iðkendur á aldrinum 7–9 ára æfa aðra hverja viku, 10–13 ára kylfingar æfa einu sinni í viku og unglingahópurinn, 14–18 ára, æfir tvisvar í viku. Meistaraflokkarnir æfa einnig tvisvar í viku. Þá er fyrirhugað að bjóða unglingahópnum og meistaraflokkunum þar að auki upp á golfleikfimi einu sinni í viku.
Undirritaður tók við starfi íþróttastjóra/yfirþjálfara golfklúbbsins 1. nóvember og á sama tíma réðum við þrjá nýja þjálfara til starfa. Það eru þau Berglind Ósk Geirsdóttir, Brynar Logi Bjarnþórsson og Guðmundur Kristján Haraldsson en þau eru öll meðlimir í klúbbnum og iðkendur í meistaraflokki GÞ.
Tímabil klúbbsins hófst 1. nóvember og stendur fram á næsta haust. Þá verður stutt hlé áður en starfið hefst aftur 1. nóvember 2027. Nýliðun fer að mestu fram á sumaræfingum og núverandi iðkendur eru því þeir kylfingar sem æfðu hjá okkur í sumar. Við stefnum þó að því að halda nýliðanámskeið í hermunum í vetur, ef aðstæður leyfa.
Það hefur verið áhugavert púsluspil að finna æfingatíma sem henta þeim iðkendum sem æfðu hjá okkur í sumar og iðkendafjöldi er eins og staðan er núna 39 undir 18 ára aldri auk 12 kylfinga í meistaraflokkunum. Það veitir okkur örlítið svigrúm til þess að bæta inn nýjum kylfingum af yngstu kynslóðinni og áhersla okkar er að fjölga stúlkum í golfi.
Golfhermarnir hafa gjörbreytt starfinu og gert okkur kleift að bjóða upp á æfingar allt árið. Iðkendur fá þannig betri tækifæri til að halda sér við yfir veturinn og mæta betur undirbúnir þegar sumarið gengur í garð. Við erum þakklát fyrir þann góða grunn sem nú hefur skapast og hlökkum til að halda áfram að efla starfið.
Til umræðu er að koma upp innanhússaðstöðu fyrir vipp og pútt. Slík aðstaða myndi bæta gæði æfinganna, auðvelda skipulag þjálfunar ásamt því að auka hagkvæmni í rekstri íþróttastarfs klúbbsins. Við það skapast einnig tækifæri á að taka á móti nýjum iðkendum þegar næsta tímabil hefst í nóvember.