Metþátttaka var í Meistaramóti GÞ í júlí. Alls mættu 77 kylfingar til leiks, tíu fleiri en árið áður. Allir flokkar léku þrjá hringi á þremur dögum. Berglind Ósk Geirsdóttir og Brynjar Logi Bjarnþórsson urðu klúbbmeistarar.
Meistaraflokkur kvenna
Berglind Ósk Geirsdóttir (260), Malai Rattanawiset (278) og Ásta Júlía Jónsdóttir (289).
Meistaraflokkur karla
Brynjar Logi Bjarnþórsson lék á 234 höggum. Hann var eini keppandinn í flokknum.
Punktakeppni kvenna
Ásta Júlía Jónsdóttir (98). Sólveig Jóhannesdóttir, Guðveig Jóna Hilmarsdóttir og Malai Rattanawiset deildu öðru sæti með 97 punkta.
Karlar 60 ára og eldri
Ólafur Ingvar Guðfinnsson (103 punktar). Guðni Þórir Walderhaug og Birgir Vagnsson deildu öðru sæti með 97 punkta.
1. flokkur karla
Óskar Gíslason (249 högg) og Guðmundur Kristján Haraldsson (251). Sæmundur Oddsson og Gunnar Árnason deildu þriðja sæti á 253 höggum.
2. flokkur karla
Baldur Guðmundsson og Svanþór Gunnarsson voru jafnir á 270 höggum. Viktor Óli Elvarsson varð þriðji á 275.
3. flokkur karla
Gabriel Máni Hallsson (288 högg), Viktor Freyr Ómarsson (289) og Kristófer Júlíusson (304).
4. flokkur karla
Jóhann Felix Jónsson (100 punktar), Fannar Óli Ólafsson (97) og Guðjón Gunnarsson (94).
Haraldur Haddi Guðmundsson hélt velli á áttunda og síðasta móti á Innanfélagsmótaröð GÞ um liðna helgi og bar sigur úr býtum í heildarkeppninni. Haddi fékk alls 25 stig, tveimur meira en Heimir Óskarsson, sem vann síðasta mótið á 16 punktum. Það dugði Heimi ekki því Haddi náði öðru sætinu með 15 punkta. Við óskum Hadda innilega til hamingju með sigurinn, en að launum fær hann veglegt gjafabréf í golfversluninni Golfskálanum.
Lokastaðan (nafn, stig):
Haddi Guðmundsson 25
Heimir Óskarsson 23
Bjarki Óskarsson 21
Ernir Ingi Eiríksson gerði sér lítið fyrir og vann Ingvar Jónsson í frábærum úrslitaleik í Bikarkeppni GÞ fyrr í dag, 2/1 á 17. holu. Ernir er því bikarmeistari GÞ.
Ernir hóf yfirstandandi leiktíð með rúmlega 42 í forgjöf, en er nú með 23 og er kominn alla leið í úrslit, þar sem hann mætti þjálfara sínum og lærimeistara, sem reyndi allt hvað hann gat til að velgja nemanda sínum undir uggum. Ingvar var nærri holu í höggi og var einnig grátlega nærri því að vippa í holu á sautjándu, til að halda leiknum gangandi, en þar við sat og sá ungi hafði betur.
Leið Ernis Inga í úrslitin var þannig:
umferð: Sigur á Oddi Tómasi Oddssyni.
umferð: Sigur á Sigurði Inga Pálssyni.
umferð: Tap fyrir Sigurbirni H. Jakobssyni á 18. holu, en það var nægilega naumt til að koma Erni áfram í fjórðungsúrslit á reiknireglu.
Fjórðungsúrslit: Sigur á Degi Skúlasyni.
Undanúrslit: Sigur á Óskari Gíslasyni.
Úrslitaleikur: Sigur á Ingvari Jónssyni.
Heimamaðurinn Ásmundur Pétursson lék sinn besta hring á Þorláksvelli 1. maí og vann punktakeppni Black Sand Open með 44 punktum. Snorri Jökull Egilsson varð annar með 41 punkt og Skúli Kristinn Skúlason þriðji með 40. Í fyrstu verðlaun hlaut Ásmundur kvöldverð, gistingu og heimsókn í heilsulind Black Sand Hotel á Óseyrartanga.
Klúbbmeistararnir mættust á ný 12. september, nú sem fyrirliðar í Bændaglímunni. Brynjar Logi leiddi rauða liðið til sigurs með 22 stigum gegn 14 stigum bláa liðsins undir stjórn Berglindar Óskar.
Félagar GÞ léku Jónsmessumót klúbbsins á Þorláksvelli föstudaginn 26. júní. Alls voru 48 kylfingar skráðir í tólf fjögurra manna lið. Keppt var í Texas Scramble. Eftir hvert högg völdu liðsfélagarnir þann bolta sem lá best og léku öll fjögur þaðan.
Á bæjarhátíðinni Hamingjunni við hafið luku 96 tveggja manna lið keppni í Opna Hamingjumóti 66°Norður á Þorláksvelli. Þrjú efstu liðin léku öll á 61 höggi nettó. Emil Þór Ásgeirsson og Emil Ásgeir Emilsson urðu hlutskarpastir, Sigurður Steinar Ásgeirsson og Hafsteinn Ísarr Sigurðsson urðu í öðru sæti og Gísli Steinar Valmundsson og Þorvaldur Freyr Traustason í því þriðja.
Þá fór fram svokallað Mad Scramble, í samstarfi við bandaríska viðburðafyrirtækið Random Golf Club, þar sem um fimmtíu kylfingar léku allir saman í liði og ráshóp.