Starfið á Þorláksvelli byggist á framlagi launaðs starfsfólks og sjálfboðaliða. Sumarið 2026 sást það vel á stórum mótsdögum. Á meðan starfsfólkið sinnti vellinum og tók á móti gestum komu félagsmenn að mótahaldi og störfum nefnda. Þjálfarar og leiðbeinendur tóku á móti vaxandi hópi barna á æfingum.
Mynd: Þessir fjórir hörkuduglegu vinnumenn söfnuðu óteljandi boltum utan æfingasvæðis í kvöld. Yngri kynslóðin frá vinstri, Finnur Andri Jónsson og Theodór Atli Jónsson. Heldri menn frá vinstri, Sveinn afi Jónsson og Jón H. Sigurmundsson. Hjartans þakkir strákar!
Sem fyrr stýrði Vigdís Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri daglegum rekstri GÞ, en hún og Edwin Roald eru í hlutastarfi eins og Chris Elrick, sem samið var við til eins árs um að vinna með Edwin að vallarhirðu, sjálfvirkum slætti og viðhaldi tækja.
Gerður var samstarfssamningur við Knattspyrnufélagið Ægi um að tveir leikmenn liðsins ynnu á vellinum á árinu, en það voru þeir Jordan Adeyemo og Baptiste Gateau. Einnig kom markvarðarþjálfari liðsins, Ivaylo Emilov Yanachkov, eða Choki, til starfa hjá klúbbnum, en hann hafði áður unnið hjá Golfklúbbi Vatnsleysustrandar.
Í skálanum byrjaði Ásta Kristín Ástráðsdóttir árið, þar til Daníela Magnúsdóttir tók við í vor, en Svala Ósk Sævarsdóttir leysti hana af hólmi þegar hún sneri aftur til náms í haust. Svala hefur nú verið ráðin í fullt starf hjá klúbbnum, enda er framundan mikið annríki við skráningu félagsmanna og bókanir næsta ár, samhliða stöðugri vetrarnotkun vallarins og viðleitni til að bjóða fleira fólk velkomið í skálann.
Gunnar Ingi Sveinsson bættist við starfslið okkar í sumar eftir að hafa unnið sem verktaki að uppsetningu vallarsalernis á 8. og 12. teig og er nú kominn í hlutastarf.
Golfskáli og verslun: Svala Ósk Sævarsdóttir, Daníela Magnúsdóttir, Ásta Kristín Ástráðsdóttir, Ásta Kristjana Jensdóttir, Guðríður Anna Sveinsdóttir, Ingibjörg Aðalsteinsdóttir, Gyða Steina Þorsteinsdóttir, Elma Finnlaug Þorsteinsdóttir.
Völlur og verktaka: Baptiste Gateau, Jordan Adeyemo, Ivaylo Emilov Yanachkov, Sævar Elí Kjartansson, Guðmundur Kristján Haraldsson, Emelía Ósk Sigurðardóttir, Franzisca Gunnarsdóttir, Kolbeinn Óli Lárusson, Gunnar Ingi Sveinsson, Hrannar Kristinn Darrason.