Eftirfarandi gildir almennt nema annað komi fram: Samþykkt er með öllum greiddum atkvæðum. Frestun máls er til næsta fundar. "A" merkir aðalmaður og "V" varamaður.
Formsatriði: Útnefning fundarritara, manntal, handhafar atkvæðisréttar og kynning.
Fundarmenn með atkvæðisrétt:
Árni Hrannar Arngrímsson formaður (A)
Gyða Steina Þorsteinsdóttir (A)
Ingvar Jónsson (A)
Óskar Gíslason (A)
Snorri Jökull Egilsson (V)
Aðrir fundarmenn:
Vigdís Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri
Edwin Roald fundarritari
Fjarverandi:
Sigríður Lára Ásbergsdóttir (A)
Haraldur Guðmundsson (V)
Fundargerð aðalfundar. Samþykkt.
Afstaða stjórnar til og möguleg undirritun siða- og hegðunarreglna GSÍ. Frestað.
Ákvörðun um kröfur stjórnar til aganefndar og barna- og unglinganefndar og afstöðu til Viðbragðsáætlunar eineltis og ofbeldismála. Umræddum nefndum falin umfjöllun.
Upplýsing nýrra stjórnarmanna um fjárhagslega og lagalega stöðu og skuldbindingar GÞ. Afgreitt.
Tillaga formanns að hlutverkum stjórnarmanna. Eftirfarandi samþykkt með öllum greiddum atkvæðum:
Formaður: Árni Hrannar Arngrímsson
Varaformaður: Gyða Steina Þorsteinsdóttir (óbreytt)
Gjaldkeri: Sigríður Lára Ásbergsdóttir (var ritari)
Ritari: Ingvar Jónsson (var meðstjórnandi)
Meðstjórnandi: Óskar Gíslason
Útfylling og undirritun breytingar á stjórn til Skattsins, á bankaheimildum og heimilisfangi. Afgreitt.
Skipunarbréf fastanefnda og tillaga að umboði stjórnar til að fela nefndarformönnum val á nefndarmönnum í samráði við framkvæmda- og vallarstjóra. Nefndarformönnum falið að skipa nefndir og bera undir stjórn til
samþykktar innan 14 daga.
Fyrirspurn GSÍ um mót á vegum þess 2026. Eftirtalin mót voru staðfest með öllum greiddum atkvæðum:
GSÍ-mótaröðin 6. - 7. júní
Íslandsmót 14 ára og yngri 20. - 22. ágúst
Stjórn telur sér ekki fært að samþykkja beiðni GSÍ um að halda mót á unglingamótaröð sambandsins 23. - 24. maí, sem annað aðildarfélag sambandsins hafði áður tekið að sér en hætt við.
Samþykkt var að úthluta Landssambandi eldri kylfinga (LEK) mánudeginum 25. maí, öðrum í Hvítasunnu, fyrir fyrsta mót sumarsins á LEK-mótaröðinni.
Endurgjaldslaus aðgangur landsliðs að Þorláksvelli. Samþykkt einróma með vísan í munnlegt samkomulag við afreksstjóra GSÍ um að valdir upprennandi afrekskylfingar í GÞ megi leika æfingahringi í skipulögðum æfingalotum landsliðs á vallarsvæði GÞ.
Frumdrög að fjárhagsáætlun 2026. Umræður. Samþykkt að endurskoðuð áætlun verði lögð fyrir næsta fund.
Ákvörðun stakra vallargjalda og úrræða fyrir fólk sem glímir við alvarleg veikindi eða er í óvenjulegum aðstæðum. Umræður. Frkv.stjóri beri tillögu undir stjórn með tölvupósti við fyrsta svo fljótt sem auðið er.
Samstarfssamningur við Knattspyrnufélagið Ægi um vinnu leikmanna á golfvelli. Samþykktur.
Ráðningarsamningar vallarstarfsmanna. Umræður. Samþykkt að fela framkvæmdastjóra gerð ráðningarsamninga.
Samstarfssamningur við 66 Norður. Samþykktur.
Drög að viljayfirlýsingu milli GÞ og Teigsins Golfstofu. Ingvar Jónsson víkur af fundi vegna hagsmunatengsla. Umræður. Samþykkt.
Framlenging samkomulags við framkvæmda- og vallarstjóra. Tillaga um að útnefningu eins eða fleiri stjórnarmanna til viðræðna og leggja fram drög fyrir stjórn. Formanni faldar viðræður.
Upplýsing um samtöl við þróunarfélög hótels á kambinum og frístundabyggðar norðan golfvallar. Frestað.
Skipun laganefndar til að framkvæma allsherjar endurskoðun á lögum GÞ, kanna heimildir til takmörkunar réttinda við aukaaðild o.fl. Tillaga að lögfræðingunum Vigdísi og Sigurði Steinari Ásgeirssyni. Samþykkt að skipa nefndina þessum aðilum auk formanns.
Skipun afmælisnefndar vegna 30 ára afmælis GÞ 2027. Frestað.
Skipun heiðursmerkjanefndar. Frestað.
Önnur mál.
Gerð heimildamyndar eða þátta(r) um uppgræðslu á Hafnarsandi, baráttu Þorlákshafnarbúa og Íslendinga við sandinn með kröftugri tilvísun í uppgræðsluhlutverk Þorláksvallar, í tilefni af 30 ára afmæli GÞ 2027. Samþykkt að styrkja verkefnið um allt að 500 þús.kr., með viðunandi fyrirvara um framleiðslu og dreifingu og þátttöku GÞ í ákvörðun efnistaka, handritsgerð o.s.frv. Viljayfirlýsing GÞ þess efnis verði boðin framleiðanda til að auðvelda aðra fjármögnun.
Uppbygging salernishúsa á velli. Vísað til vallarnefndar.
Breytingar á golfskála innanhúss. Formanni vallarnefndar, frkv.stjóra og vallarstjóra falið að gera tillögu að næstu skrefum.
Tímasetning vetrarfunda stjórnar. Kl. 19.30 annan miðvikudag í hverjum mánuði og nefndir fundi þess á milli.
Verkefnalisti stjórnar settur upp. Frestað.
Fundarslit og staðfesting á tímasetningu næsta fundar. Kl. 19.30 miðvikudaginn 11. mars 2026.
/ ER