Sérréttirnir okkar þrír eru matreiddir af ástríðu fyrir nýtingu hágæða hráefnis úr heimahéraði, í samstarfi við framsækin fyrirtæki í sjálfbærri matvælaframleiðslu í nágrenni okkar.
Bragðmikil, eftir fjölskylduuppskrift,
með ferskum þorski frá Skinney-Þinganesi, sem hefur aldrei farið í vörubíl. Já, þessi þorkur er sko ekki útkeyrður.
Nautakjötssneiðar frá Hvammi í Ölfusi, sem alið er á hráefni sem eftir verður hjá bruggverksmiðjuni Ölverki í Hveragerði. Súrsaðar gúrkur og remúlaði, allt búið til úr hráefni úr Ölfusi, og steiktur laukur, á hverabrauði frá Hveragarðinum.
Reyktur lax frá landeldi First Water, með soðnu eggi og piparrótarsósu, á hverabrauði frá Hveragarðinum í Hveragerði.
Einnig eru í boði pylsur, flatkökur með hangikjöti, samlokur með hangikjötssalati, rækjusalati og roast beef, grillaðar samlokur með skinku og osti, súkkulaðibitakökur og margt fleira góðgæti sem gott er að hafa með sér út á völl.
Meðal drykkja eru Coca Cola, Powerade, Bonaqua og Viking óáfengur.