Íslensk fyrirtæki eiga stóran þátt í stórauknum vinsældum golfíþróttarinnar á Íslandi síðustu ár. Fimmtudaginn 1.október mætast þau á Þorláksvelli í Íslandskeppni WCGC, glænýrri fyrirtækjakeppni sem tengir íslenskt atvinnu- og viðskiptalíf við alþjóðlegt samfélag World Corporate Golf Challenge.
Sigurliðið verður fulltrúi fyrirtækis síns og Íslands í heimsúrslitum World Corporate Golf Challenge.
Nú gerum við okkur glaðan dag saman, etjum kappi, styrkjum tengslin og ræðum hvernig við getum gert íslenskt fyrirtækjagolf enn skemmtilegra.
Hvert fyrirtæki sendir tveggja manna lið sem leikur betri bolta í punktakeppni.
Áherslan er á glæsilega umgjörð, tengslamyndun og góða keppni á Þorláksvelli, sem hefur sjaldan verið betri.
Ekki þarf að ákveða leikmenn strax. Skráið fyrirtækið og fjölda liða núna. Nöfn leikmanna og GolfBox-númer mega berast síðar.
Frestur til að tilkynna þátttöku og fjölda liða er til
Auðkenni leikmanna má tilkynna síðar
Hvar og hvenær
Þorláksvöllur
26. ágúst 2027
Fyrirkomulag
18-holu 2ja manna betri bolti
Punktakeppni með forgjöf
Fyrstu verðlaun
Heimsúrslit
í Peking
Skráning
Tilkynnið lið núna
Skrá má leikmenn síðar
Mótsgjald fyrir tvo.
Æfingahringur og æfingaboltar.
Ótakmarkaður matur og drykkur fyrir og eftir hring.
Veitingabíll á velli.
Sömu hlunnindi í landsúrslitum ef til undankeppni kemur.
Heimsúrslit WCGC í október 2027.
Innifalið er flug, hótel, mótsgjald og veitingar skv. dagskrá.
Bragðmikil, eftir fjölskylduuppskrift,
með ferskum þorski frá Skinney-Þinganesi, sem hefur aldrei farið í vörubíl. Já, þessi þorkur er sko ekki útkeyrður.
Nautakjötssneiðar frá Hvammi í Ölfusi, sem alið er á hráefni sem eftir verður hjá bruggverksmiðjuni Ölverki í Hveragerði. Súrsaðar gúrkur og remúlaði, allt gert úr hráefni úr Ölfusi, og steiktur laukur, á hverabrauði frá Hveragarðinum.
Reyktur lax frá sjálfbæru landeldi First Water, með soðnu eggi og piparrótarsósu, á hverabrauði frá Hveragarðinum í Hveragerði.
Þátttökurétt hafa fyrirtæki, stofnanir, félagasamtök og aðrir lögaðilar.
Leikmenn geta verið starfsmenn, stjórnarmenn, hluthafar, viðskiptavinir, samstarfsaðilar eða velunnarar fyrirtækisins. Ekki þarf að staðfesta tengslin formlega.
Leikmaður þarf að hafa GolfBox-númer, getur mest fengið 30 í forgjöf óháð kyni og þarf að hafa skilað minnst þremur hringjum til forgjafar árið 2026.
Mótið er liður í uppbyggingu GÞ með áherslu á landgræðslu og baráttu gegn landeyðingu, orkuskipti, heilnæma útivist, félagslíf og lýðheilsu — auk hefðbundins íþrótta- og æskulýðsstarfs.
Tengingin við WCGC opnar jafnframt leið inn í alþjóðlegt samfélag fyrirtækja þar sem skapast tækifæri til nýrra kynna, sýnileika og miðlunar reynslu.