Hvert fyrirtæki sendir tveggja manna lið og velur sjálft þá kylfinga sem leika fyrir þess hönd. Leikmenn geta verið starfsmenn fyrirtækisins, stjórnarmenn, hluthafar, viðskiptavinir, velunnarar eða samstarfsaðilar. Leikmenn sama liðs þurfa ekki að hafa sams konar tengsl við fyrirtækið.
Leikið verður í tveggja manna betri bolta í punktakeppni með forgjöf. Báðir leikmenn leika eigin bolta og betra punktaskor liðsins gildir á hverri holu. Nánari keppnisskilmálar, þar á meðal útreikningur leikforgjafar, úrskurður um jöfn úrslit og framkvæmd mótsins, verða birtir áður en leikur hefst.
Til að vera gjaldgengur þarf hver leikmaður að hafa GolfBox-númer, virka og staðfesta WHS-forgjöf og hafa skilað inn að minnsta kosti þremur hringjum til forgjafar á árinu 2026 áður en keppni hefst.
Hámarksgefin forgjöf í mótinu er 30, bæði hjá körlum og konum. Leikmaður sem reiknast með hærri gefna forgjöf má taka þátt en leikur með að hámarki 30 í gefna forgjöf. GolfBox verður notað til að staðfesta forgjöf og að tilskildum fjölda forgjafarhringja hafi verið skilað inn.
Við viljum gefa sem flestum fyrirtækjum kost á að taka þátt. Endanlegt keppnisfyrirkomulag ræðst því af fjölda fullgreiddra liða þegar skráningu lýkur.
Mótið verður aðeins haldið árið 2026 ef minnst 40 lið hafa verið skráð og greidd fyrir lok skráningarfrests.
Ef lágmarksþátttaka næst ekki verður mótið ekki haldið og greidd þátttökugjöld verða endurgreidd að fullu.
Þá verður WCGC Fyrirtækjamót GÞ einn samfelldur viðburður á Þorláksvelli fimmtudaginn 17. september.
Mótið verður jafnframt landsúrslit WCGC Iceland og bein keppni um sætið í heimsúrslitunum og farseðilinn til Peking.
Ræst verður samtímis á öllum teigum. Sigurlið mótsins verður fulltrúi fyrirtækis síns og Íslands í heimsúrslitunum í Peking.
Þá verður haldin undankeppni í eins mörgum lotum og með þarf, t.d.:
Fyrri riðill fimmtudaginn 17. september
Síðari riðill föstudaginn 18. september ef með þarf
Hvert lið leikur aðeins í einni undankeppni, í einn dag.
Ræsing í undankeppninni verður annaðhvort samtímis á mörgum eða öllum teigum eða með hefðbundnum rástímum.
Fyrirkomulag ræsingar verður ákveðið þegar skráningu lýkur með hliðsjón af fjölda liða og framkvæmd mótsins.
Við skráningu geta fyrirtæki tilgreint hvor dagurinn hentar betur.
Reynt verður að verða við óskum, en mótsstjórn áskilur sér rétt til að skipta liðum milli riðla.
Ef haldin verður undankeppni í tveimur riðlum fara landsúrslit WCGC Iceland fram laugardaginn 26. september.
Sunnudagurinn 27. september verður hafður til vara ef veður eða vallaraðstæður koma í veg fyrir leik á laugardeginum.
Gert er ráð fyrir að 4–8 lið leiki í landsúrslitunum. Endanlegur fjöldi liða og fjöldi sæta úr hvorum riðli verður ákveðinn með hliðsjón af skráningu og tilkynntur áður en undankeppnin hefst.
Að minnsta kosti eitt lið kemst áfram úr hvorum riðli.
Lið sem kemst áfram þarf að geta leikið laugardaginn 26. september og einnig sunnudaginn 27. september ef færa þarf landsúrslitin vegna veðurs.
Sigurlið landsúrslitanna verður fulltrúi fyrirtækis síns og Íslands í heimsúrslitunum í Peking.
Þátttaka í landsúrslitunum er innifalin í upphaflegu þátttökugjaldi.