World Corporate Golf Challenge er alþjóðleg fyrirtækjagolfkeppni sem hefur verið haldin frá árinu 1993.
Landskeppnir fara fram í meira en 30 löndum og sigurlið hvers lands keppir fyrir hönd fyrirtækis síns og lands í heimsúrslitum WCGC.
Nei. Fyrirtækið getur skráð fjölda liða og gengið frá greiðslu áður en leikmenn eru ákveðnir.
Nöfnum, netföngum og GolfBox-númerum leikmanna þarf að skila fyrir auglýstan lokafrest.
Nei. Fyrirtækið velur sjálft þá kylfinga sem leika fyrir þess hönd.
Þeir geta verið starfsmenn, stjórnarmenn, hluthafar, viðskiptavinir, velunnarar eða samstarfsaðilar fyrirtækisins.
Hver leikmaður þarf að:
Hafa GolfBox-númer
Hafa virka og staðfesta WHS-forgjöf
Hafa skilað inn að minnsta kosti þremur hringjum til forgjafar á árinu 2026 áður en keppni hefst
GolfBox verður notað til að staðfesta þessar upplýsingar.
Hámarksgefin forgjöf er 30 hjá bæði körlum og konum.
Leikmaður sem reiknast með hærri gefna forgjöf má taka þátt en leikur með að hámarki 30 í gefna forgjöf.
Já. Fyrirtæki geta skráð fleiri en eitt lið og þátttökugjaldið lækkar eftir því sem fleiri lið eru skráð á sömu kennitölu.
Já. Fyrirtækið getur valið mismunandi leikmenn í hvert lið, svo framarlega sem allir uppfylla forgjafar- og þátttökuskilyrði mótsins.
Já. Fyrirtæki geta tilnefnt leikmenn síðar eða skipt um leikmenn fram að auglýstum skilafresti leikmannaupplýsinga.
Breytingar eftir þann tíma eru háðar samþykki mótsstjórnar.
Hvert lið er skipað tveimur leikmönnum. Leikið verður í betri bolta í punktakeppni með forgjöf.
Báðir leikmenn leika eigin bolta og betra punktaskor liðsins gildir á hverri holu.
Þá verður einn samfelldur viðburður á Þorláksvelli fimmtudaginn 17. september.
Mótið verður landsúrslit WCGC Iceland og bein keppni um sætið í heimsúrslitunum og farseðilinn til Peking. Ræst verður samtímis á öllum teigum.
Þá verður haldin undankeppni í tveimur riðlum 17. og 18. september. Hvert lið leikur í einum riðli og aðeins annan daginn.
Lið sem komast áfram leika síðan í landsúrslitum laugardaginn 26. september.
Ræsing verður annaðhvort samtímis á mörgum eða öllum teigum eða með hefðbundnum rástímum.
Endanlegt fyrirkomulag verður ákveðið þegar skráningu lýkur og verður tilkynnt þátttakendum með góðum fyrirvara.
Gert er ráð fyrir að 4–8 lið leiki í landsúrslitunum.
Endanlegur fjöldi liða og fjöldi sæta úr hvorum riðli ræðst af skráningu og verður birtur áður en undankeppnin hefst.
Að minnsta kosti eitt lið kemst áfram úr hvorum riðli.
Landsúrslitin fara fram laugardaginn 26. september.
Sunnudagurinn 27. september er varadagur ef veður eða vallaraðstæður koma í veg fyrir leik á laugardeginum.
Lið sem kemst áfram þarf því að geta leikið báða dagana.
Fyrirtæki geta óskað eftir degi við skráningu. Reynt verður að verða við óskum, en ekki er hægt að tryggja ákveðinn dag.
Föstudagurinn 18. september verður aðeins notaður ef þátttaka gefur tilefni til að skipta keppninni í tvo riðla.
Mótið verður ekki haldið og greidd þátttökugjöld verða endurgreidd að fullu.
Þátttökugjaldið innifelur meðal annars:
Keppnisgjald og vallargjald fyrir tvo leikmenn
Tvær máltíðir fyrir hvorn leikmann
Hressingar eftir níu holur
Veitingar og drykki samkvæmt dagskrá
Veitingavagn á vellinum
Verðlaun og mótshald
Þátttöku í landsúrslitum án aukagjalds, komist liðið áfram
Sigurliðið verður fulltrúi fyrirtækis síns og Íslands í heimsúrslitum WCGC í Peking dagana 19.–23. október 2026.
Verðlaunapakkinn fyrir tvo leikmenn innifelur flug til Peking og til baka, gistingu og þátttöku í opinberri dagskrá heimsúrslitanna samkvæmt nánara fyrirkomulagi.
Já. Báðir leikmenn þurfa að geta ferðast til Peking og tekið þátt í opinberri dagskrá heimsúrslitanna dagana 19.–23. október 2026.
Íslenskir ríkisborgarar sem ferðast með gilt almennt vegabréf þurfa samkvæmt núgildandi reglum ekki vegabréfsáritun til Kína vegna heimsúrslitanna. Undanþágan nær sérstaklega til þátttöku í íþróttakeppnum og gildir fyrir dvöl í allt að 30 daga.
Keppendur með annað ríkisfang eða annars konar ferðaskilríki þurfa að kanna hvaða reglur gilda um þá. Þar sem ferðareglur geta breyst verða gildandi skilyrði staðfest að nýju fyrir brottför.
Keppendur þurfa að hafa meðferðis gilt almennt vegabréf. Einnig er mælt með að þeir hafi aðgengileg eftirfarandi gögn, annaðhvort á prenti eða rafrænt:
Staðfestingu á þátttöku í heimsúrslitum WCGC
Boðsbréf eða aðra staðfestingu frá mótshaldara
Flugmiða eða staðfestingu á flugbókun
Staðfestingu á gistingu
Ferðatryggingaskírteini og upplýsingar um neyðaraðstoð tryggingafélags
Nánari ferðagögn og tengiliðaupplýsingar sem WCGC Iceland eða alþjóðlegur mótshaldari afhendir fyrir brottför
Keppendur bera sjálfir ábyrgð á að vegabréf og önnur ferðagögn séu gild og fullnægi þeim reglum sem gilda á ferðatíma.
Ef sigurlið getur ekki nýtt keppnisréttinn eða uppfyllir ekki þátttökuskilyrði getur mótsstjórn boðið næsta liði réttinn samkvæmt úrslitum keppninnar.
Mótsstjórn getur breytt rástímum, dagskrá, keppnisfyrirkomulagi eða fjölda leikinna hola ef veður, ástand vallar eða öryggissjónarmið krefjast þess.
Upplýsingar um breytingar verða sendar á skráð netföng og birtar eftir því sem við á.
Heimasíða World Corporate Golf Challenge
Heimsúrslit WCGC 2026 í Peking
Heimasíða Golfklúbbs Þorlákshafnar
Golfklúbbur Þorlákshafnar á Facebook
Golfklúbbur Þorlákshafnar á Instagram
Golfklúbbur Þorlákshafnar á YouTube
Hafið samband við WCGC Iceland og Golfklúbb Þorlákshafnar:
Netfang: info@thorgolf.is
Sími: 483 3009