Mótshaldari er Golfklúbbur Þorlákshafnar, kt. 500697-2029, Vallarbraut 1, 815 Þorlákshöfn, sem starfar sem WCGC Iceland.
Fyrirspurnir skulu sendar á info@thorgolf.is eða í síma 483 3009.
Skráning fer fram fyrir hönd fyrirtækis. Sá sem skráir fyrirtækið þarf að hafa heimild til að skuldbinda það til greiðslu þátttökugjalds.
Reikningur verður sendur eftir að skráning berst. Skráning telst staðfest þegar greiðsla hefur borist.
Aðeins fullgreidd lið teljast með þegar lágmarksþátttaka og endanlegt fyrirkomulag mótsins eru ákveðin.
Skráningarfrestur er til loka sunnudagsins 13. september 2026, nema mótshaldari tilkynni um framlengingu eða að uppselt sé í mótið.
Þátttökugjald er:
79.900 kr. fyrir fyrsta lið fyrirtækis
69.900 kr. fyrir annað lið sama fyrirtækis
59.900 kr. fyrir þriðja lið og hvert lið þar á eftir
Afsláttur miðast við að liðin séu skráð á sömu kennitölu og reikningsfærð saman.
Mótið verður aðeins haldið árið 2026 ef minnst 40 lið hafa verið skráð og greidd.
Ef 40–46 lið skrá sig verður ein landskeppni haldin á Þorláksvelli fimmtudaginn 17. september. Ræst verður samtímis á öllum teigum og sigurliðið öðlast keppnisrétt í heimsúrslitum WCGC í Peking.
Ef 47 lið eða fleiri skrá sig verður haldin undankeppni í tveimur riðlum 17. og 18. september. Hvert lið leikur í einum riðli og aðeins annan daginn.
Ræsing í undankeppninni getur verið samtímis á mörgum eða öllum teigum eða með hefðbundnum rástímum. Mótsstjórn ákveður fyrirkomulag ræsingar þegar skráningu lýkur.
Ef undankeppni fer fram verða landsúrslit haldin laugardaginn 26. september. Sunnudagurinn 27. september er varadagur vegna veðurs eða vallaraðstæðna.
Gert er ráð fyrir að 4–8 lið leiki í landsúrslitunum. Endanlegur fjöldi liða og fjöldi sæta úr hvorum riðli verður ákveðinn með hliðsjón af skráningu og birtur áður en undankeppnin hefst.
Að minnsta kosti eitt lið kemst áfram úr hvorum riðli.
Með skráningu samþykkir fyrirtækið þau mögulegu keppnisfyrirkomulög sem hér eru tilgreind.
Ef lágmarksþátttaka næst ekki verða greidd þátttökugjöld endurgreidd að fullu.
Eftir að greiðsla hefur borist er skráning bindandi og þátttökugjald er ekki endurgreitt ef fyrirtæki hættir við þátttöku.
Fyrirtæki má tilnefna leikmenn síðar eða skipta um leikmenn án aukagjalds fram að lokafresti leikmannaupplýsinga.
Breytingar eftir þann tíma eru háðar samþykki mótsstjórnar. Nýr leikmaður þarf að uppfylla öll þátttöku- og forgjafarskilyrði mótsins.
Hvert lið er skipað tveimur leikmönnum sem koma fram fyrir hönd sama skráða fyrirtækis.
Leikmenn geta verið starfsmenn, stjórnarmenn, hluthafar, viðskiptavinir, velunnarar eða samstarfsaðilar fyrirtækisins.
Til að vera gjaldgengur þarf leikmaður að:
Hafa GolfBox-númer
Hafa virka og staðfesta WHS-forgjöf
Hafa skilað inn að minnsta kosti þremur hringjum til forgjafar á árinu 2026 áður en keppni hefst
Hámarksgefin forgjöf er 30 hjá bæði körlum og konum.
Reiknist leikmaður með hærri gefna forgjöf leikur hann með 30 í gefna forgjöf.
Mótsstjórn sannreynir forgjöf og fjölda skráðra forgjafarhringja í GolfBox og getur leiðrétt leikforgjöf í samræmi við keppnisskilmála.
Leikið verður í tveggja manna betri bolta í punktakeppni með forgjöf.
Keppnisreglur R&A, staðarreglur Þorláksvallar og útgefnir keppnisskilmálar WCGC Fyrirtækjamóts GÞ gilda um leikinn.
Mótsstjórn birtir nánari reglur um leikforgjöf, jöfn úrslit, rástíma og framkvæmd mótsins áður en leikur hefst.
Lið sem kemst áfram úr undankeppnisriðli þarf að geta leikið í landsúrslitum laugardaginn 26. september.
Liðið þarf jafnframt að geta leikið sunnudaginn 27. september ef færa þarf landsúrslitin á varadaginn vegna veðurs eða vallaraðstæðna.
Sama lið skal að jafnaði leika undankeppni og landsúrslit. Breytingar á skipan liðs eru háðar samþykki mótsstjórnar.
Sigurlið þarf að geta ferðast til Peking dagana 19.–23. október 2026.
Ef sigurlið getur ekki nýtt keppnisréttinn eða uppfyllir ekki þátttökuskilyrði má mótsstjórn bjóða næsta liði réttinn samkvæmt úrslitum keppninnar.
Skipti á leikmanni í sigurliði eftir landsúrslit eru háð samþykki mótshaldara.
Mótsstjórn getur breytt rástímum, keppnisfyrirkomulagi, fjölda leikinna hola eða dagskrá ef veður, ástand vallar, öryggissjónarmið eða aðrar ófyrirséðar aðstæður krefjast þess.
Keppendum ber að fylgja fyrirmælum mótsstjórnar og starfsfólks vallarins.
Keppendur taka þátt á eigin ábyrgð og bera ábyrgð á eigin búnaði, heilsu og persónulegum tryggingum.
Leikmenn sigurliðsins bera sjálfir ábyrgð á fullnægjandi ferða- og sjúkratryggingum, gildum vegabréfum og þeim ferðaleyfum sem kunna að vera nauðsynleg.
Mótshaldari ber ekki ábyrgð á persónulegum útgjöldum, breytingum á ferðatilhögun eða öðru tjóni nema slík ábyrgð leiði af ófrávíkjanlegum lögum.
Golfklúbbur Þorlákshafnar vinnur með skráðar upplýsingar í þeim tilgangi að:
Afgreiða skráningu og greiðslu
Staðfesta forgjöf og leikheimild
Skipuleggja og framkvæma mótið
Senda nauðsynlegar upplýsingar til fyrirtækja og leikmanna
Birta rástíma, úrslit og verðlaunasæti
Undirbúa þátttöku sigurliðsins í heimsúrslitum WCGC
Nöfn leikmanna, fyrirtæki, rástímar, skor og úrslit geta verið birt opinberlega á vef, í GolfBox, á samfélagsmiðlum og í umfjöllun um mótið.
Ljósmyndir og myndskeið kunna að verða tekin á mótssvæðinu og notuð í frétta- og kynningarefni mótsins og mótshaldara. Tekið verður tillit til rökstuddra óska einstaklinga sem vilja ekki birtast í slíku efni.
Upplýsingum um sigurlið getur verið miðlað til alþjóðlegra mótshaldara, ferðaskrifstofu, flugfélags, hótels og annarra þjónustuaðila að því marki sem nauðsynlegt er til að skipuleggja þátttöku liðsins í Peking.
Upplýsingar verða varðveittar eins lengi og nauðsynlegt er vegna mótshalds, uppgjörs, lögbundinna bókhaldsskyldna og varðveislu úrslita.
Fyrirspurnir um meðferð persónuupplýsinga má senda á info@thorgolf.is.