Golfvöllurinn í mynni Herjólfsdals í Vestmannaeyjum er óviðjafnanlegur og margrómaður fyrir einstakt umhverfi. Þó þær liggi að mestu fjær ströndinni en seinni níu holurnar, þá liggja sumar af fyrri níu holunum um eitt áhugaverðasta golfsvæði landsins og er fjórða holan, sem er par-5, líklega eitt besta dæmið þar um. Holur 6-8 er enn fremur elstu golfholur landsins sem enn eru í notkun, en þær voru skipulagðar eða lagðar 1938-1939.
Fyrir flesta er hápunktur vallarins líklega á holum 15-17, sem liggja meðfram vogskorinni klettaströndinni, þar sem kylfingar hafa tvisvar val um hve djarft þeir tefla í höggum sínum yfir víkur og kverkar.
Félagar í Golfklúbbi Þorlákshafnar geta leikið völlinn fyrir 5.500 kr. er bókað er beint gegnum Golfbox.