Ekki missa af ógleymanlegri kvöldstund með fullt af ókunnugu fólki sem allt hefur eitt og sama markmiðið, að slá met. Fimmtudagskvöldið 18. júní, kl. 19, kemur hinn heimsþekkti Random Golf Club í heimsókn á Þorláksvöll.
Við ætlum að hóa saman eins mörgum og við getum í Mad Scramble, þar sem allir leika saman í ráshóp og liði með Texas Scramble-fyrirkomulagi.
Þetta snýst ekki allt um golfið, heldur um að koma saman, vinir og ókunnugir, og njóta lífsins saman gegnum golfleikinn. Diskó-veitingabíll, veitingar og teiggjafir.