Miðvikudaginn 15. júlí hefst meistaramót GÞ. Allir flokkar leika þrjá hringi 18 holu hringi á jafnmörgum dögum en meistaraflokkur karla leikur fjóra. Bæði kylfingar með GÞ sem full aðild og aukaaðild hafa fullan þátttökurétt á mótinu. Lokahóf, verðlaunaafhending og matur á laugardagskvöldi.
Staðsetning og dagskrá nánar auglýst síðar.
Klúbbmeistari karla er sá kylfingur sem leikur fjóra hringi á fæstum höggum án forgjafar í meistaraflokki.
Klúbbmeistari kvenna er sá kylfingur sem leikur þrjá hringi á fæstum höggum án forgjafar í meistaraflokki.
Nándarverðlaun á öllum par 3 holum (telur bara frá fimmtudegi)
Síðasti skráningarfrestur er þriðjudagurinn 14. júlí kl. 16.00.
Rástímar:
Miðvikudagurinn 15. júlí: 17.00 (eingöngu meistaraflokkur karla)
Fimmtudagurinn 16. júlí: 16.00
Föstudagurinn 17. júlí: 16.00
Laugardagurinn 18. júlí: 13.00 Ræst út á öllum teigum samtímis (shotgun start)
Ákvörðun um frestun eða niðurfellingu umferða vegna veðurs er í höndum mótstjóra og mótstjórnar GÞ
Nánari rástímar kylfinga koma í loftið eins fljótt og hægt er daginn fyrir leikinn hring. Rástímar verða birtir á golfbox og facebook síðu klúbbsins. Á fyrsta hring í hverjum flokki er handahófskennd röðun á rástíma. Eftir það ræður staða í flokknum röðuninni nema mótanefnd ákveði annað.
Bráðabani í öllum flokkum skal fara fram á 18. braut
Leikröð og fyrirkomulag:
1. flokkur karla (forgjöf 7.1 – 14) – gulir teigar - höggleikur án forgjafar
2. flokkur karla (forgjöf 14.1-22) – gulir teigar - höggleikur án forgjafar
3.Flokkur karla (forgjöf 22.1-30) bláir teigar - höggleikur án forgjafar
4. Flokkur karla (forgjöf 30.1-54) bláir teigar - punktakeppni með forgjöf
Öldungaflokkur karla (60+) bláir teigar - punktakeppni með forgjöf
Kvennaflokkur - rauðir teigar - allar konur leika í sama flokk þar sem keppt er í höggleik án forgjafar og punktakeppni með forgjöf. Sigurvegari höggleiks er klúbbmeistari og klúbbmeistari getur ekki unnið punktakeppnina.
Meistaraflokkur karla (7 og undir í forgjöf) – hvítir teigar - höggleikur án forgjafar
Mótsgjald. 7500kr
Skráning: GolfBox
ATH!
- Til að hafa þátttökurétt í meistaramóti þurfa kylfingar að hafa skilað a.m.k. 3 hringjum til forgjarar síðustu 12 mánuði.